Hamingjan í Hillunum - rafbók

2.450 kr.
Smásagnasafn

Í þessu fjölbreytta smásagnasafni kennir ýmissa grasa — frá kjarnyrtum örsögum til eftirminnilegra smásagna. Í safninu eru sögur sem kitla hugann, gleðja hjartað og vekja til umhugsunar.

Birna G. Konráðsdóttir hefur lengi mundað pennann með næmu auga fyrir smáatriðum lífsins. Við lesturinn hafa komið fram brosviprur, skellihlátur og tár hafa lekið niður kinnar. Rétt eins og í lífinu sjálfu. Sögurnar hafa hlotið verðlaun og birst í safnritum og tímaritum, en hér birtast þær beint úr hennar eigin bókahillu — yfir til þín.

Því stundum býr hamingjan ekki bara í lífinu sjálfu, heldur líka í hillunum.

Setja í körfu