Sumartilboð-Smásagnasafn í sumarbústaðinn

Þótt að maí sé rétt að klárast þá er náttúran komin í búning eins og við eigum frekar að venjast í júní eða jafnvel júlí, þegar vorið hefur verið kalt. En vegna þessa eru margir nú þegar farnir að huga að ferð í sumarbústaðinn eða skreppa í frí. Þá er tilvalið að taka með sér bók og fátt betra en einmitt smásagnasafn. Af því tilefni er smásagnasafnið Hamingjan í Hillunum á sumartilboði eins og sjá má á þessari síðu.

Jafnframt eru bækurnar komnar til sölu hjá Pennanum og hjá Forlaginu á Fiskislóð. Ekki láta happ úr hendi sleppa, gríptu með þér spennandi bók í sumarbústaðinn, á frábæru verði.

Njóttu lesturs og sagna í bland við notalega frídaga.