Finnst þér gott að lesa lítið í einu?

Ert þú einn af þeim sem verður þreyttur við langan lestur? Þá er smásagnasafn einmitt eitthvað fyrir þig.
Guðjón D. Gunnarsson er einn þeirra sem segir að smásögur henti sér vel. Hann sendi eftirfarandi ummæli um bókina „Hamingjan í Hillunum“ að lestri loknum og sagði að þau mætti nota hvar sem væri.
Blessuð og sæl, kæra Birna. Nú er ég búinn að lesa „Hamingjuna í Hillunum“. Frábærar sögur á máli sem ég skil. Sumar sögurnar ljótar og aðrar fallegar, en allar höfðu þær mikil áhrif, það féllu mörg tár. Bestu þakkir og kveðjur.“
Svo, ef þú hefur ekki fest kaup á bókinni „Hamingjan í Hillunum“ er ekki eftir neinu að bíða.