Það er Ragnheiður Ásta sem hefur orð fyrir hópi sex bókelskra kvenna sem lesa alls konar bækur og ræða þær yfir dýrðlegum málsverði. Ragnheiði Ástu fórust svo orð:
Eins og ég lofaði þér þá kemur hér smá umsögn um bókina þína. Hún hlaut góða dóma. „Þessi kona er flottur penni. Skrifar gott mál. Hún talar um málefnin sem hún fjallar um af þekkingu, greinilega lífsreynd kona. Hún kemur víða við og mér finnst misnotkun vera henni ofarlega í huga. Hún virðist vera slyng í mannlegum samskiptum, kann alla vega ýmis bjargráð við klípum eins og einelti. Skemmtilega kjaftfor stundum og í sögunni sem ég las í gær, talar hún um stert. Þetta orð var notað um tagl fyrir norðan í minni æsku og reyndar enn þann dag í dag, hef ekki heyrt það lengi.“ Þetta skrifaði ein, sem komst ekki í klúbbinn sl mánudagskvöld, en vildi leggja til umræðunnar.
Við hinar vorum nokkuð sammála henni. Það var líka áhugavert að sumar voru hrifnar af dularfullum atburðum og sýnum, sem höfðuðu ekki til annarra. Skemmtilegur húmor einkenndi líka margar sögurnar og við vorum allar sammála um að þær væru mjög „íslenskar“. Sumum fannst að sumar sögurnar hefðu haft gott af því að vera styttar svolítið og að jafnvel hefði mátt ritstýra sumum.
En mikil ánægja með fyrstu bókina þína. Til hamingju. Vegni þér sem allra best á öllum sviðum.